Leita í fréttum mbl.is

Takk fyrir afmæliskveðjurnar...


Hæ hæ þið öll, takk fyrir allar fallaegar kveðjurnar bæði hérna, sms og facebook...Ég er ekki smá þakklát...;)

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI HÚN HALLA HÚN Á AFMÆLI Í DAG ELSKU BESTA VINKONA HAFÐU ÞAÐ SEM ALLRA BEST Í DAG AFMÆLISKNÚS FRÁ MÉR TIL ÞÍN..............!!!

RUT (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 11:30

2 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

takk fyrir Ástin mín...

Halla Vilbergsdóttir, 7.11.2008 kl. 11:38

3 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Til lukku!

Brjánn Guðjónsson, 7.11.2008 kl. 13:30

4 identicon

Ekkert að þakka snúllan mín

Rut (IP-tala skráð) 7.11.2008 kl. 13:33

5 identicon

Elsku besta SSG-Halla ... þú ert bara flottust!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 15:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband