Leita í fréttum mbl.is

Kann ekki að fara í karakter....

Það sá ég í dag að ég verð aldrei leikari..Fór í smá leik í dag með eitthvað ponsu auka hlutverk í þætti sem er að koma út og þar sá ég sko sannarlega að ég klárlega ER BARA ÉG SJÁLF. Ég gæti klárlega aldrei farið í einhvern annan karakter en Höllu Vilbergs..En þetta var skemmtileg að sjá hvernig glamúrlífið er við tökur. þau eru dugleg og tek ég að ofan fyrir þeim..Mér fannst bara voða gott að fara heiim aftur og knúsa ormana mína, sem voru ekki að kunna vel við þetta fyrirkomulag sem ég bauð uppá í dag. Ég fór út á undan þeim í morgunn og þegar Ástþór kom heim rúmlega 19.00 þá var mamman rétt ókomin með hammara af metró,ónei minn var ekki að fara að borða þann viðbjóð. Vildi bara fá mömmumat og spurði mig sannarlega frá hjartanu..ertu þroskaheft, engin matur hahah En það reddaðist, við urðum vinir. ´Jú þar sem ég nennti ekki að sinna heimilinu í gær og hékk í leti þá beið þap nú alveg eftir mér að veita því yfirhalningu í kveld og ég í þá gulu auðvitað,vatn í fötu og allir klárir. Vindi mér uppá aðra hæð að skúra og þurrka af í góðu tómi,Vilberg að glápa á mynd og allir sælir...eftir 15 mín kemur Ástþór upp með Blað og penna og spyr"mamma hvað er CVC númerið hjá þér" uu ég var ekki ap kveikja..jú þarna örugglega á kortinu þínu..ég varð forvitin og spyr hvurn fjandann ert að gera drengur...í koddu bara með'a segir hann pirr já og vinnusímann þinn það verður svo hringt í þig.. nei ég var ekki að fara að segja honum það og fér niður... Þá er guttinn með opið WWW.hhi.is og á leiðinni að gerast áskrifandi að happadrættismiða..ég var hissa. En hann skildi ekkert í mér hann væri lukka og við fengjum pottþétt 75 mills og okkur veitti bara ekkert af þeim ;) En það var afgreitt...við gerðumst ekki áskrifendur.!! en svo sé ég msn-ið mitt er þá púkinn ekki að spjalla við vin minn og vill vita hvað hann er að gera og hvort hann vilji nú ekki koma til mín í kaffi ahahaha alveg að koma mömmu sinni út....frábær drengur..;)  Á meðan allt þetta er að ske er Villin steinsofandi og Arna úti.. svo ég hef lítið að segja af þeim tveim í dag. En rétt í þessu er hún komin heim þannig ég ætla segja þetta gott og henda mér til hvílu.....

 Hafið voða gott..knús frá okkur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dagrún Steinunn Ólafsdóttir

Ertu ekki líka bara best sem hún Halla Vilbergs?

Frábær drengur sem þú átt:)

Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, 16.1.2010 kl. 15:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband