Leita í fréttum mbl.is

NOKKUÐ FLOTTAR AUGLÝSINGAR ;)

* Sérstakur hádegisverðarmatseðill: Kjúklingur eða buff kr: 600,0
kalkúnn kr: 550, börn kr: 300.

* Til sölu: Antik skrifborð hentar vel dömum með þykka fætur og
stórar skúffur.

* Nú hefur þú tækifæri til að láta gata á þér eyrun og fá extra par með
þér heim.

* Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það
varlega í höndunum.

* Til sölu nokkrir gamlir kjólar af ömmu í góðu ástandi.

* Þetta hótel býður uppá bowling sali, tennisvelli, þægileg rúm og aðra
íþróttaaðstöðu.

* Brauðrist: Gjöfin sem allir fjölskyldumeðlimir elska.
Brennir brauðið sjálfvirkt!

* Ísafjarðarkaupstaður: Starfsmann vantar, kvenmann, til starfa.

* Við byggjum upp líkama sem endist ævilangt!

* Vantar mann til að vinna í dínamitverksmiðju. Þarf að vera
tilbúinn til að ferðast.

* Notaðir bílar. Því að fara annað og láta svíkja sig. Komdu til
okkar!

* Vinna í boði fyrir mann til að hugsa um kú sem hvorki reykir né
drekkur.

* Ólæs? Skrifaðu okkur strax í dag og við munum veita þér ókeypis
aðstoð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Það er alveg greinilegt að í þessu hefur allt farið afsíðis, sem gat farið afsíðis.

Kjartan Pálmarsson, 22.5.2008 kl. 23:57

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Við eyðileggjum ekki fötin þín með óvönduðum vélum, við gerum það
varlega í höndunum.

Guð, hvað þetta var krúttlegt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 23.5.2008 kl. 23:55

3 identicon

Ég hef líka alltaf barist fyrir því að þykkfóta fólk fái nú húsgögn við sitt hæfi!!! Ha ha ha Börnin á Asíu og Caruso eru nokkuð seig ... flott hér á Friðriki V. og Greifanum... 350 kr. að vísu!

Frábær listi - takk fyrir hann.

Dýrindis kveðjur frá Akureyri, dúlla!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 15:56

4 Smámynd: Tiger

  Alltaf gaman að lesa gott gamanefni ... knús í helgina.

Tiger, 24.5.2008 kl. 15:59

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þetta getur ekki verið í alvöru...

Gunnar Helgi Eysteinsson, 25.5.2008 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband