Leita í fréttum mbl.is

Skóli Lífsins er merkilegur heheh

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda
maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól.

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og
um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri
dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
þessum þremur hlutum
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum
við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama
og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska
á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
ekki hvernig þú lætur því líða.

Já já maður er alltaf að læra eitthvað nýtt hehheh gleðilegan miðvikudag ;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Mjög góð færsla Halla!

Skál fyrir miðvikudegi í tilefni dagsins bara!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 28.5.2008 kl. 13:49

2 Smámynd: Þórunn Eva

já þetta er súper góð færsla hjá þér sæta.... og miðvikudagar er ógó góðir því grey´s er í sjónvarpinu... uppáhalds dagurinn minn

GLEÐILEGAN MIÐVIKUDAG... 

Þórunn Eva , 28.5.2008 kl. 16:51

3 identicon

Manneskjan er yndisleg og það ert þú líka ... enda ertu auðvitað manneskja... beint frá hjartanu er rétta ákvörðunin ... en stundum þarf hausinn að skipta sér af og þá er þetta smá barátta á milli þeirra.

Rigning, farangur, jólaskraut ... ég þarf að muna þetta - - mér finnst þetta frábær speki!

Knús og kveðjur til þín og takk fyrir flotta færslu!

Doddi - Þorsteinn G. Jónsson (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:29

4 Smámynd: Jac Norðquist

Ok, ég er harðánægður með þessa góðu færslu.... en eitt er að bögga mig.... What the Fu** er "Skrefbót á sokkabuxum" ??? Fyrirgefðu fáfræðina.... en plís hjálpaðu mér

Jac

Jac Norðquist, 29.5.2008 kl. 11:36

5 Smámynd: Halla Vilbergsdóttir

hæ hæ já takk öll fyrir;) en jac   ég skal hundur heita ef skrefbót á sokkabuxum er ekki TÍGULLINN Í KLOBBANUM ;)

Halla Vilbergsdóttir, 29.5.2008 kl. 13:29

6 Smámynd: Jac Norðquist

Ok, ekki batnar það mín kæra.... Tígull í klobbanum ??? Nú fer ég og versla einar Oroblue og kanna málið sjálfur !!!!

Hahahahahaha (ég þori ekki að messa í sokkabuxum konunnar)

Jac Norðquist, 29.5.2008 kl. 15:15

7 identicon

Mjög góð færsla

MAGNUS FINNUR HAUKSSON (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 12:08

8 identicon

Yfirleitt skála ég bara á miðvikudögum svo skál fyrir því .....það er þriðji í miðvikudegi og mín að fara að vinna

Sara (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 21:59

9 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Skemmtileg færsla

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.5.2008 kl. 18:05

10 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Góð færsla flotta skvís

Guðrún Hauksdóttir, 2.6.2008 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband