Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

ALVEG GÆTI ÞETTA OLTIÐ ÚR MÍNUM MUNNI ;)

· Allt fór afsíðis sem gat farið afsíðis........
· Þessi peysa er mjög lauslát......................
· Þau eiga þvílíka myllu, lifa eins og greifingjar og leika á alls eggi......(Geri aðrir betur....)
· Hann sló tvær flugur í sama höfuðið............
· ...þarna hefði ég sko viljað vera dauð fluga á vegg......
· Ég sá svo sæta stelpu að ég fór alveg fram hjá mér........
· Ég var svo þreyttur að ég henti mér undir rúm......
· Hann sat bara eftir með súrt eplið.................
· Og, nú, góðir farþegar, er einmitt fengitími melóna.....
· Ég hreinlega vissi ekki í hvorn fótinn ég ætti að setjast......
· Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti....
· Þar stóð hundurinn í kúnni...
· Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra...
· Svo handflettir maður rjúpurnar...
· Já, fólk núorðið er svo loðið á milli lappanna.....
· Þetta er ekki upp í köttinn á Nesi.
· Betur sjá eyru en auga
· Ég er alveg stein vöknuð!(eftir að hafa verið steinsofandi)
· Ég er eitthvað svo sunnan við mig. (sagt á Akureyri)
· Það er ég sem ríð rækjum hér(að ráða ríkjum)
· Ég er búinn að vera andvana í alla nótt
· Róm var ekki reist á hverjum degi!( Sagði maður á Selfossi)
· Vinsamlegast beinhreinsið vínberin (í jólauppskrift)
· Lærin lengjast sem lifa (maður lærir svo lengi sem maður lifir)

9,8 Á PRÓFI....;)

JÁ HVERJUM HEFÐI DOTTIÐ ÞAÐ Í HUG HAHAHAH en það er bara þannig....Ég er bara svona sérlega klár greinilega að ég nelgdi Þetta bara svona fínt....og alveg ógó montin ;)'Eg hélt alltaf að ég væri illa haldin af athyglisbrest en það virðist ekki vera húrra fyrir því InLove þá er bara að tækla næsta...sem ég held að verði lítið mál...kaupi bara smá nammi handa kennaranum,þá held ég að ég sé sloppin fyrir horn..heheheh hann bað mig að henda inn nektar mynd af sér hérna á bloggið og auðvitað geri ég það sem ég er beðin um......;)

Ég googlaði bara upp Leibbi kennari og þá kom upp þessi fína mynd af honum....

                      ber


  SPURNING UM AÐ VAXA Í NÆSTA TÍMA Whistling

Jæja ég stóð við mitt svo nú er það hans að gefa mér tíu á næsta heheheh...

 


BUMBAN Á MÉR ER EINS OG LANDAKORT........

'Eg var ekkert smá dugleg í kvöld..úff ég mokaði í einn ruslapoka af dóti hjá þeim piltum og síðan ekki söguna meir...geri bara restina á morgunn ;)  Ég nefnilega missti mig í að hugsa og vá ekki kemur það nú oft fyrir og ég er bara ekki frá því að það gúmmílykt í kjallarann....En já um hvað var ég að hugsa ha...Whistling Það var bara svona eiginlega hvað mig mundi langa, og það er bara hellingur..Devil T,d nýr lexus,steingrár. Djöfull eru þeir fínir shit ;) Ég verð nú að vera á svona fínni kerru þegar ég er buin í átakinu sem ég var að skrá mig í í dag ;) stefni á 4 kg í þessum mánuði og þá mega 2 fara sem eftir er sumars hehe þá er ég sko sérdeilis sátt...Ef við erum að fara að leika okkur á spáni þá þyðir nú ekkert að vera eins og vagúm pakkað bjúga....bara ekki í boði.Tounge  Svo fór eg nú að spá að eftir svona nett átak og ef það gengur,'Eg hætti i namminu og kóki og helvítis bjórnum þá verðlauni ég mig með bikini..En það gleymdist fljótt þegar ég mundi eftir ógeðis örinu á bumbunni...ohh ég fékk gallsteina 95, sem voru teknir 1996 og skurðurinn eins og þjórsá..helber viðbjóður ;) svo ég fæ mér bara kafarabúning. En ekki slæmt að geta hisjað upp um sig bolinn og geta sýnt þjórsá og svo er naflinn svo nettur þessa dagana,hann er eins og Gauahellir...hahah þarft svona ljós á ennið til að kíkja inn í hann ;) magnað.....ég gæti verið i sirkus ;) en það lagast,verð ógó sæt eftir heilan mánuð...það verður fróðlegt að sjá hvort ég standist freistingar og missi þessi 4kg ;)  Ég var nú samt alvarlega að spá í að smella mér á danska kúrinn og drekka bara FAXE,það held ég að sé i boði ;) Já já þannig málið er núna að vera dugleg,borða hollt,drekka vatn og svo fara í ræktina áður en kortið rennur út ... ;) en fyndið þetta var 1 dagurinn og ég gaf nammið og nú trúlega get ég ekki sofnað því ég veit að það eru tómir skápar...haha fyrir hvað á ég þá að vakna í nótt Errm

Bjúgað er allavega komin á koddann og tilbúin að takast á við dag 2 í heljar átaki....ég vill hafa þetta svona keppni....en það borgar sig ekki þá þarf ég að fara að svindla og svona hehehe...taka 20 hydro á dag og leika forest gump...nenni því ekki ;) Ég hef ekki fengið hlaupasting i 24 ár og fer varla að gera það úr þessu...á gamals aldri...nei er þaðInLove

jæja apar BUMBAN GOOGLE EARTH BÍÐUR GÓÐA NÓTT....;)

 


Komin með nóg í bili......

Hvað í fjandanum gæti verið að manni....ég fór á lappir 12 þegar krakkarnir voru búin að gera fokhelt og rúmlega það og ætlaði að taka súbbann í gegn og heimilið..setja föt i poka og setja í rauðakrossinn,taka þennann samtíning sem er hér upp um alla veggi og glugga og fleygja því...já og svona henda sirka öllu úr herberginu hjá piltunum á haugana..óþarfa helvítis drasl um allt herbergiWhistling  Þoli ekki þegar þetta er út um allt ;( fer í mínar fínustu....svo verð ég líka að láta ath eyrun í krökkunum ég hef stórar áhyggjur að þau séu stútfull af merg...heyra allavega ekki eitt orð.Sick já og ég er ekki búin að gera nokkur skapaðan hlut nema pirra mig á þeim.....skil ekki afhverju eg er ekki 2 kíló á þesum eltingarleik alltaf...

fjandans óþægð hérna í þeim og afþví Deddi er farin á sjó þá halda þau að allt sé i boði og ég sé bara  eitthvað vangefin...ég er aðþví komin að fara í rot gírinn...!!!!!!!!!! En ég held ég geti farið að slappa af núna villingurinn var að sofna í sófanum í vindbuxunum og skóm með grilluðu pylsuna sína i höndinni hahaha þá er hann farin að hlaða batteryin fyrir morgunndaginn...og ég ætti að gera það líka...en núna get ég farið í það sem staðið hefur til í allan dag...taka allt í gegn...;)

en hver ætli taki tæplega 4 ára dreng i sveit hehe veit einhver það...og miklu meira hægt að láta hann vinna heldur en 15 ára krakka pottþétt....;) endalaus vinnumaður..

æi hann er nú voða krútt svona steinsofandi mð pylsuna..;) 

kveðja ein i pirringskasti...;) 

 


GULUR OG GLAÐUR ;)

Þetta var nú alveg auðvitað svaka fjör í dag ;)

Allir tilbúnir að vakna NEMA AUÐVITAÐ skæruliðinn HANN VAR EKKERT AÐ FARA AÐ KEPPA OG BREYDDI BARA YFIR HAUS... Ástþór var alveg glimrandi góður og skoraði 3 mörk,og skulda ég honum 2000 KJELL...hann gerði díl á leiðinni að ég mundi greiða honum 500 fyrir markið og ég samþykkti það en svo öskraði hann mig í síðasta leik...ÞÚSUND KALL Á MARK OG DÚNDRAÐI INN HEHEHEHHE ;)

þannig hann var bara helv...góður Halo

þá lá leið okkar í sörla því Arna átti að keppa 2 og ætlaði svo með okkur heim...En hún var svona Glimrandi fín á töltinu  og auðvitað beint í úrslit og verða þau á morgunn svo við bíðum bara spennt eftir morgun deginum....

Þannig bæði voru með flottan dag í sínu sporti...og ekki gleymist Villinn..ég veit bara ekki hvað sportið hans kallast.hehe

'A meðan ég var að horfa á Ástþór var afrekaði hann margt...eins og t,d Míga beint fyrir utan hurðina á Akraneshöllinni og þegar það var verið að áminna hann þá skilur hann ekkert í þessu röfli í manni..og segir hvað er þetta maður slakiði á ÉG VAR BARA AÐ FÁ MÉR AÐ MÍGA svo var hann horfin með það sama....nú það leið ekki langur tími þar til hann fannst næst... Mér var litið upp í stúku og sé glitta í gallabuxur sem mér fannst vera eins og hans...jú jú þar var hann fastur milli veggsins og stúku með rassinn nyður eins brotin nett saman..hnéð við nefið...;) og ég spurði hann hvað í fjandanum ertu nú að gera ...EKKERT SAGÐI HANN HORTUGUR..SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER FASTUR. jú ég sé það sagði ég.....nú á þá bara að standa þarna,og var hann mikið hneikslaur á mömmu sinni þarna......;) hehe og svo koll af kolli.. ég var bara orðin þreytt á eltingarleik við hann..........sem þýðir hann verður heima næst.

En hún Aníta hún var bara eins og hún átti að vera stóð hjá okkur og öskraði á grindavík;)

Jæja nú er búið að vera þögn í smá tíma frammi þannig þá er HARMLEIKUR Í UPPSIGLINGU og ég farin að athuga hvað Vilti villi er að dunda sér við núna.....;) 


ÉG HELD AÐ VILLI VERÐI FERMDUR Á STUÐLUM HEHEHEH

Jæja þá er mín enn að brenna sig á kaffiþambi...þoli ekki hvað ég er stapill og ákveðin,ég Ætlaði ekki að fá mér dropa eftir kl 17  því ég þarf að vakna 6.15 og viti menn ég er búin trúlega með eina 5 bolla bara síðan 9...Whistling  Ég var bara  í góðum gír að nesta liðið fyrir Akranes í fyrramálið...Hann Eysteinn fótbolta þjálfari í Grindavík bauð Ástþóri að keppa með gömlu vinunum og var kauði alveg glimrandi glaður með þaðInLove Frábært hjá Eysteini...Og sagðist Ástþór ætla taka nokkur mörk fyrir hann hehehe...En þar sem Aníta Georgs er í Hölluhelgi og Vilberg í gírnum Eins og vanalega þá verðum við nú að fara á lappir tímanlega..Svo fékk Birgir Söruson næturgistingu í kjallaranum til að fá far á skagann....Svo þetta verður bara hellings battery...og klárlega er ég viss um að ég sofi yfir mig,Vilberg öfugsnúin þegar það er ræs og neitar að fara í föt og læti og sá stóri trúlega Illa geðvondur yfir að fá ekki að sofa út...;) æi.Devil

Villi og Aníta eru bestu vinir og frábært hvað þau eru miklir grallarar....Aldrei draga þau úr vitleysunni í hvort öðru heldur er bara vesen frá A-Z á þeim allann daginn haha í dag þá tóku þau upp öll fjölæru blómin í garðinum og settu saman í nettan vönd,bönkuðu svo uppi hjá lúlla..(eigandanum af blómunum) og færðu honum...það kom auðvitað svipur á liðið og þau skömmuð fyrir að skemma blómin.Ekki var minn alveg sáttur við skammir því hann sagði hvað er þetta þau  eiga bara að fara í vatn heheh alveg frábært....Devil

                                                                            SNILLINGARINIR....;)

april 2008 077

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En jæja þá er það koddinn blessaður..reyni að koma mér fyrir með Ástþór uppí..plássfrekasta krakka sunnan alpafjalla...Undecided 

 


Endalaust líf á þessum bæ...........;)

Það er nú magnað þetta veður sem hefur verið hérna í vogunum í dag ;) vá vangefið....Deddi ræsti mann út í að mála gróðurhúsið og vorum við að þvi í allann dag með Möggu( mömm hans) og Ingu sys.....svaka fjör sem endaði með grill party og fjör..sófasettið og kamínan komin á sinn stað svo ég verð ekkert hérna inni fyrr en í haust hehe vei vei....þar má drekka öl og halda party svo bara allir velkomnir í garðparty...Whistling

Hjólakennslan gengur sinn gang...ég hleyp á eftir og held í og svo er bara hlegið...þetta er nú meira fíflið Devil

Ástþór gerði mömmu sína káta í gær...hvarf og ég leitaði að honum um allt..og orðin nett pirr á kauða en fann hann á endanum upp á húsþaki á skólanum stríðandi stóru stelpunum heheheh þá er það byrjað...og djöfull held ég að minn verði naskur í þessu....InLove Endalaust flottur.....

jæja vildi bara segja hæ á meðan Villinn er að sofna svo er ég bara farin aftur í kósýheitin út í gróðurhús......helv næs......;)

skál..... 

Ég var nú samt að pæla hvernig ég í fjandanum náði að mála allt hárið á mér hnéð,samt í buxum og bumbuna....merkilegt en það verður alltaf meiri málning á mér en draslinu sem ég er að mála hahaha trúlega brussa....allt á að ganga og gerast í hvelli...hahah þoli ekki seinagang....;) 


Villi lærir að hjóla.....

Heheheh það er nú ekki merkilegt um að vera á þessum bæ....strákarnir voru ekki heima um helgina en vá fagnaða fundirnir miklir þegar þeir mættu á svæðið í gær ;) búnir að vera nánast i viku......

En Snillingurinn var ekkert að skafa af því þegar hann kom í hús,nú skildi hann taka hjálparadekkið af því hann gæti alveg hjólað....hahah nú hafa síðustu 2 dagar farið í að hlaupa á eftir honum nyður götu hangandi í hettunni því hann getur ekkert hjólað...hann er svoddann api,hlær bara um leið og ég sleppi og er floginn á hausinn með það sama...InLove

Hann kom til mín þegar hann vaknaði og sagði mamma sjáðu það er suzuki veður úti hhahahahah frábær....

Já en annað er bara í ró og spekkt....ekkert farið og ekkert gert oj letin að drepa alla hér...en það er ´nú bara ágætt líka svo ég kveð í bili og farin í sófann að glápa á RUV  vei vei vei..... 


LÝST ER EFTIR MANNI.......FREKAR ÚRILLUM HEYRÐIST MÉR HEHEHEH

Djöfull munaði litlu að ég væri núna í barcelona!!!!!!!!  um kl 2 í gær náði ég í Dedda á sjó þá segir hann jæja nú bíð ég þér út og hringdi í iceland express og eina sem laust var,var til barcelona kl 16.25 og hann sagði henni að halda því og við mundum fara ;) en á heimleiðinni fórum við að spá í þessu...það væru 2 tímar í flug og við í rvk hehehe þannig ég fékk bara að ráða...nú skildi haldið á Tálknafjörð í heimsókn til önnu.,...vei vei hún er æði...og´við fórum bara að plana það og söltuðum hitt i nokkra daga...svo hringi ég i Önnu nei viti menn þá er hun á BARCELONA.....fjandinn...;)

þannig það var bara farið golf í mígandi til 10 í gærkveld og grillað...í dag er það bara leti og svo erum við nuna hjá ingu og högna að fara að grilla;)

En ég auglýsi eftir þeim sem kom og barða allt að utan hjá okkur kl 11 í morgunn og þegar hann var að fara kallaði hann inn um gluggann á herberginu SVEFNBURKUR FÝLURÖDDU HAHAHHAHAHAHA ég er ógó forvitinn því ekki hefur sá sem mikið vantaði að tala við annað hvort okkar reynt að hafa samband aftur hahaha Devil pottþétt Krissi en guð segðu mér ef þú lest þetta hahahah


MITT BANAMEIN VERÐUR NJÁLGUR...

pottþétt eitthvað í þá áttina...eitthvað sem hefur engan drepið...Whistling Það er alveg merkilegt að ef ég tek mér eitthvað fyrir hendur þá skal eitthvað koma fyrir..en núna er ég loksins barnlaus og Deddi á leið í land á morgunn svo það átti að taka kveldið í alþrif á heimilinu...En auðvitað er það allt eins og var núna og ég að koma af vaktinni saumuð ohhh  Ég átti eitthvað svaka fínt ilmkerti sem var búið,en bara kantarnir eftir og ætlaði ég að vera svo sniðug að brytja það nyður og nota í svona ilmkrukku....En um kl átján þá fór mín að verka kvikindið og viti menn ég stakk bara á bólakaf ofan í lúkuna á mér..hahahah meiri snillingurinn...Devil En hann er samt á leið í land og mikið væri gott að spila golf og leika sér alla helgina frekar en að skúra og þurka af...þannig gúmmíhanskarnir eru komnir á hendurnar og vatn í fötu og ég farin að klára það sem ég byrjaði á.Annars sofna ég bara ekki hehe verð andvaka yfir aulagang....jæja kem bara með eitthvað viturlegra síðar ;)

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband