Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

OHH ÉG ER ILLA HALDIN AF ALSHEIMER BÚLEMÍU HELD ÉG......

ÉT OG ÉT EN GLEYMI AÐ ÆLA....... SORGLEGT!! Devil ég fékk mér auðvitað ekkert i morgun mat en gúffaði svo einhverju lion bar ógeði í mig í hádeginu svo var bara hressilega tekið á því á duus....oj kjúklingapasta og ég er ennþá að drepast.

Merkilegt hvað ég er full af orku núna..enginn Vilberg til að eltast við þannig nú sit ég uppi eins og ofvirkur krakki,veit ekki hvað ég á að mér að gera..nema að sofa er ekki í boði, bara engin sjensBlush

Sá stóri er nú samt sofnaður ;) fékk ekkert kaffi í kvöld, Hann er nú alveg magnaður. Spurði mig um 6 leytið mamma geturðu lánað mér 100 kall ég spurði nú afhverju.....nú ætli ég verði ekki að kaupa mér að éta hahahah hann hafði einhverja áhyggjur að það yrði ekki hugsað um hann því við erum bara 2 heima...jú ég fór og splæsti í hann langloku svo fór ég auðvitað eitthvað fínna hahahaWhistling

Á morgunn er ég að fara að skoða vinnu sem mér bauðst....hljómar vel og ég kanski bara að spá ;) Ég er búin að vera heimavinnandi síðan í jan og hjálp ég á eftir að drepa einhvern....mikið djöfull er það leiðinlegt að hanga svona...ég helt alltaf það yrði frábært að vera heima og fara bara á fjórhjólið þegar manni dettur i hug og svona já en nei ég er bara ekki stelpan í það........þá vaki ég allann sólarhringinn hehehe teygji lopann eins og ég get....ég er farin að tala barnamál og hegða mér eins og krakki..alltaf sunnudagur jesús það er ekki að virka...en verst hvað maður er góðu vanur..;) Að vinna hjá hemma var það besta sem ég hef gert því líkur snillingur þar á ferð. Þá gellaði maður hausa allann daginn og laugardag og fékk svo bara 3gja mánaða sumarfrí á launum...þannig með réttu á ég að vera að fara í frí fljótlega heeheh en æi ekki langar mig aftur samt að gella....mig dreymdi þennann fjanda á nóttunni...viðbjóður.. en vá hvaða væll er þetta í mér...hahahah svona hæ ég heiti Halla mér er illt hérna og þarna og allt glatað hahahah nei djók

ég er farin að skúra kjallarann og telja svo geitur ég var búin með kindurnar og svínin...kanski ég semji sögu um Geitina Búdil og svínið Andrés sem áttu heima i litlum hænsnakofa...prufa það...

góða nótt apar og fyrirgefið þessa vitleysu í mér...Halo


Tapa ekki veðmáli fyrir karlmönnum...DETTUR ÞAÐ EKKI Í HUG ;)

Jæja þá er mín búin að gera enn einn skandalinn....setti bara helling af ljósum strípumDevil það sem hann Eyjólfur getur platað mann í hehe en samt nokkuð gott hjá kauða..Whistling mér var hugsað til þess þarna í stólnum hjá honum að það er merkilegt að ég skuli alltaf láta verða að því sem mér dettur í hug ohhh..ég get ekkert planað fram í 2 daga,það þarf bara allt að ske í dag..Halo  Mér dettur til hug að fara til köben á miðvikudegi og farin á fimmtudagmorgni. Lifi klárlega bara fyrir daginn í dag hehehe hvað veit maður...Undecided Ég er annars fín...já bara nokkuð góð, á leið til kef að borða á duus og svo risakynning kl 20...læt mig ekki vanta núna..ég er buin að vera með fjandans leti og missi bara af ykkur strákar en núna megið þið fara að vara ykkur Gvendur og Gunnar ég kem svona glimrandi fín undan vetri og RASSKELLI ykkur i afköstum núna hahhaahhahhah....Wizard Setið bara nett veðmál i gang og ég er GAME. En þangað til næst þá er ég bara farin og hafið þið það gott.Devil


HJÚKK AÐ ÉG ER EKKI BÓNDI....

Þá hefði ég núna þurft að selja jörðina nú eða klárlega láta LÓGA KRAKKANUM....En við vorum að koma frá Birni Árdal í dag sem er ofnæmislæknirinn hans Villa. Og ég sem vonaði að hann væri bara að lagast af þessu ofnæmi eitthvað issss Undecided nei sérdeilis ekki...Fyrir um ári síðan þá var hann með ofnæmi fyrir kisum,eggjum og jarðhnetum..helst ekki fá appelsínur,tómata og allt sem er súrt..svo í dag fórum við aftur í próf og úr því kom að hann má nú alveg fara að fá egg,þau virðast ætla vaxa af honum en svo bætti hann við að í hópinn væri komið ofnæmi fyrir frjókornum,hundum og hestum;( og ég sem var nýbúin að segja við hann,þegar læknirinn er búin þá getur pabbi kanski farið með þig í hesthúsið) En nú er það ekki í boði...ekkert. Svo er ráðlegt að halda honum frá kryddi og svona því sem við sjáum að hann þolir ekki....en þetta er bara svona.InLove við erum nú heppin hvað við erum einstaklega léttlind mæðginin hehehe..Whistling Læknirinn spurði hann ertu alltaf stilltur..minn svaraði jebb alltaf hahaha djöfull fór honum  illa að tala með RASSGATINU hahahah sá óþekkasti sem ég veit um Halo en samt snillingur....En nú er hann farin til Gunna fram á næsta mánudag og Deddi á sjó svo við erum bara 2 heima ég og Ástþór...Ég er ekki frá því að sá stóri sé frekar fegin bara á smá pásunni hann er búin að hátta mig inn í rúm núna og er frammi að horfa á bannaðar myndir,Hann vakir trúlega fram á nótt hann fékk sér nefnilega kaffibolla með mér í afmæli hjá kára áðan og trúlega ekki sibbinn...Ég þori ekki að athuga hvort keðjan mín nái inn á klósett ég er alveg að pissa i mig en verð að hlýða...heheh en svo fer hann líka til pabba síns þegar skólinn er komin í helgarfrí og þá verður kátt í höllinni..meinti kjallaranum. Ég fann mér leik á leikjanetinu þannig ég næ mér í FULLT AF NAMMI SEM ENGIN KRAKKAORMUR ÉTUR FRÁ MÉR og spila þennann leik...VONA SVO AÐ INGA OG HÖGNI VILJI PASSA MIG InLove Koma og snúa mér og svona á réttum tímum,tæma koppinn og hella í kókglasið...guð hvað það er vel þegið ;)

Jæja nóg í bili.... 


ÉG FER ALDREI AFTUR Í VERKFALL

Ég fór í verkfall og í einn kaldann sem urðu auðvitað 10...og svo  romm i kristal. Og klárlega stimplaði mig inn í voga eins og mér einni er lagið úfff....Fór á þennann pöbb hérna og hjálp hahahah klikkuð...en allavega var ballið flautað af og allir út og má ég taka það til mín...sem ég er sko ekkert með móral yfir þetta var bara komið fínt hahaWhistling

En Georg var húsmóðirin hvort sem honum líkaði það eða ekki þvó eg var ekkert að fara á fætur fyrr en fimm í dag eða hun var að verða 6...og oj nú bíð eg bara eftir að einhver komi frá fasteignamatinu með fokeldisvottorð ..kjallarinn er ónýtur.Eða allt að því eg veit ekki hvað gekk hér á en allavega þá fer ég aldrei í verkfall aftu,því núna tekur við að koma þessu i fyrra horf og trúlega verð ég að fram á nótt...Ekki get ég skúrað fyrr en Vilberg sofnar því hann gengur alltaf yfir Devil jæja ég verð að fara að gera eitthvað....Ekkert svosem að nenna...Whistling


HJÚKK ÉG VAR EKKI LAMIN....

En mér var heldur ekki hlýtt....fjandinn krullóttur ég get alveg misst mig.En verð að passa hvað ég segi þvví í síðustu viku sagði ég við KÓNGINN( Villann) kl 8 um morgunninn þegar hann var alveg að drepa mig að ég mundi ekki nenna að ná í hann á leikskólann það kæmi enginn því hann væri svo óþekkur...svo gleymdi ég að segja mamma kemur auðvitað svo það var ég sem var á bömmer allann daginn hahaha....en ég vaknaði með allar tennurnar og allt eins og það á að vera en algjörlega ósofin samt,fór eitt að ná í Dedda hann kom í land svo að ég fór í verkfall.....hann má vera húsmóðir í dag Devil þannig  ég er búin að leggja mig í dag og komin í einn kaldan og heyri ekki í þessum krökkum meira þangað til á þriðjudag heheheh en allavega gaman að ykkurWhistling

JÁ HÁ NENNIÐ VAR SKO TIL STAÐAR Í DAG...

Og mín vaknaði rúmlega tíu og smellti sér til GRINDAVÍKUR,bakvið shell og var að þrífa bílinn frá rétt fyrir 11 og var búin um 16... og mikið djöfull var hann flottur...hummm tími ekki að keyra hann núna eheInLove Ég bónaði hann 2 umferðir og bar á leðrið og alles.Enda svosem tími tilkomin hann hefur ALDREI VERIÐ EINS SKÍTUGUR OG HANN VAR OJ....síliðWhistling

En nóg var eftir af deginum til að brasa...ég sótti Anítu og í mat til þeirra Ingu og Högna...ég held þau fari að fá meðlag með mér svei mér þá.Devil En það er bara svo gott að koma þangað hehe..

Nú er ég bara komin uppí,eða varla uppí ég kemst ekki lengra en á kantinn..Aníta og Villi eru búin að hertaka bælið þannig ég fæ smá bút og get ekki sofnað vitandi það að ég á eftir að fá spörkin  í smettið í alla nótt,ekki alveg að nenna því...Ég var að hugsa um að henda mér inn til Ástþórs en þar sem hann uppáhalds frændi okkar er í heimsókn þá trúlega yrði ég meira slösuð þar...hehe en ekki smá gaman að hafa hann...á nú líka helling í honum...því hann kemur úr sameigafélaginu okkar Eydísar. Allt hennar er mitt og öfugt.Halo

Jæja ætti maður ekki að fara að sofa í hausin á sér...verð að plana einhvern stemmara í liðið á morgunn. 4 krakkar sem eru trúlega ekki að fara að hanga heima að skúra með mér hihihi Við ætlum allavega að horfa á Örnu 4 hun er að fara að keppa á hestum...ógó flott ;)

Ég verð  nú samt að segja að í dag byrjaði 1.dagurinn í að ég ræð og reglur eru reglur..sem þeir báðir tveir skulu fara eftir..því ég held þeir haldi að ég sé bara einhver foristugeit á leikjanámskeiði  sem ekki NOKKUR KJAFTUR ÞARF AÐ HLUSTA Á... þeir gera allt þver öfugt og gefa skít í það sem sagt er...nema í dag þá sáu þeir að mér er alvara og viti menn sá litli byrjaði á að segja já þá flyt ég bara til pabba...og hinn auðvitað greip það líka  og þar sem ég hef ekki hlýtt þeim í dag þá trúlega verða þeir fluttir fyrir helgi hahahahhahha  ætli ég verði ekki lamin til hlýðni af þeim á morgunn, kemur í ljós...;)


Lífið hér á bæ gengur sinn vanagang......

Hérna á vogagerðinu gengur líf sitt sinn vanagang...Alltaf eitthvað fjör.Whistling

Villi spyr núna á meðan ég skrifa...mamma ertu að skrifa humm og lét svo fylgja elsku Berglind og kærustur haahahaha hann er að hjálpa mér...InLove hann er skondin..hann var spurður í gær hvort hann mundi vilja litla systir..nei hann hélt nú ekki þá mundi hún bara krota í skólabækurnar hans haahha alveg viðbuin þvi hann er eitthvað að gramsa hjá Ástþór við slæmar undirtektir.En þar erum við sammála við villi okkur langar ekkert i eitt enn;) Hann verður bara lilli au sem eftir er...En hann er að mæta á þriðjadaginn í Björn Árdal að ath hvernig gengum með þetta blessaða ofnæmi...greyið hann er alveg að verða vitlaus og ég líka...hann má andskotann ekkert éta þá sofum við ekki nema smá og smá.....æi þetta er bara svona og við alveg jákvæð um að hann læri nú bara að lifa við þetta...sem hann er nú að gera.Honum var boðið MM um daginn,þetta gula og minn sagði nei þá verð ég dauður hahahah veit hvað hann má og hvað ekki...og það eru hnetur,egg,tómatar,og flest súrt og svo kisur....en greinilega krydd því mér var bent á að taka það af honum og er hann mun betri. Jæja hvað um það ég var nú ekkert að fara að missa mig í þetta tuð...Devil

En palli bró var valin besti leikmaður UMFG í körfu í gær og viljum við hérna óska honum til lukku...Wizard eljan í mér að kenna honum körfu í bílskúrsskotinu i gamla daga er þá að bera árangur hahahah je right....en hann er sá besti það er bara ekki flókið Halo

Svo verð ég að koma að hrósi dagsins það fær Sara Arnbjörnsdóttir...helber snillingur þar á ferð. Hún kom í kaffi í gærkveld og læsti bílnum sínum( þorði ekki öðru við erum i vogunum hihiihi) BRAUT SVO FJANDANS LYKILINN Í HURÐASKRÁNNI Devil mikið var buið að reyna að opna bílinn en nú stendur hann hér fyrir utan,upp á gangstétt og á móti umferð hahaah geri aðrir betur og engin lykill finnst af kerrunni InLove en það fór nóttin í þetta svo það var nú bara fyndið....En mikið var ég glöð því ég helt að ég væri sú eina sem mundi lenda svona í því ;) En ég kem bara og skutlast með þig á morgunn... heheh

Jæja ég er orðin sibbinn kóngurinn sofnaður á oxlinni á mér og ég bara að hugsa um að gera það líka...mæta svo galvösk að bóna bimmann í shell á morgunn því ég er buin að vera á leiðinni að gera það í viku... en nennið verður bara að vera til staðar á morgunn Whistling

 

 


Dúfurnar ekki dauðar.....hihihi

Högni og Inga ykkur er óhætt að koma heim í dag...þið sem treistuð mér ekki fyrir dúfunum haha og það var mér að þakka að þær fengu að éta..Devil Já fyfir ykkur hin sem ekki vita þá var hann Georg að passa dúfurnar fyrir mág sinn á meðan hann fór til noregs en mér var sko ekki treist fyrir þeim hann var viss um að þær væru i pottinum þegar þau kæmu heim..Whistling Nei svo mikill prakkari er ég ekki hihi en ég mundi eftir að gefa þeim þannig ég fæ hrós vikunnar...úff en ekki mundi það fara mér vel að eiga svona kvikindi þau mundu trúlega deyja,ég mundi klárlega gleyma þeim einn daginn....ég fékk nefnilega hest í jólagjöf 2004 og guð minn krullóttur ekki hef ég gefið honum einu sinni og veit bara ekki hvar hann er nyðurkominn greyið...því ég GLEYMDI HONUM...;) Trúlega er hann í góðum höndum,ég ætla ekkert að ath það þá þarf ég að fara að hugsa um hann hehehehh...geri honum bara gott með að láta hann vera...!InLove 

En tölum um gærdaginn....shit hvað ég skemmdi hann og er með skítamóral núna.Ég hafði hugsað mér að nota daginn því ég var barnlaus í eitthvað sniðugt, t,d hengja allt út þvo bmw-inn hann er til skammar í hlaðinu og nota daginn bara vel...allann þurkinn og svona en viti menn ég rétt fór úr náttfötunum til að fara í sjoppuna eftir nammi...svo svaf ég til 14....og lagði mig aftur eftir eina mynd og svo hékk ég bara i heimsmeistaraleti....sem ér ekki hægt..nú rignir og ég hengi ekki út... Bíllinn verður bara áfram eins og skítahrúga ( það er allt í lagi súbbinn er hreinn) heheh og ég verð bara að taka annað letikastWhistling

En ég set inn eina mynd af snillingnum á heimilinu..hann deyr ekki ráðalaus hann vildi fara að sofa í gærkveld en Aníta og Ástþór voru i rúminu hjá honum og einhver smá læti í þeim...þá fann hann sér heyrnahlífar og smellti á sig og steinsofnaði hihihihihi hvar væri maður án hans.....InLove

april 2008 088 

 

 

 

og smelli annari úr dúfukofanum;)

 april 2008 077

 

 

 

 


smá væl og svo bara myndir;)

ja hérna ekki er eg nú merkilegur bloggari....Whistling klárlega aldrei neitt að frétta......En ég er buin að vera í fermingu í dag sem var nú heljar fín...tók að mér að skreyta kransakökuna og gera hana fína..bræddi sykur og setti á konfektmolana og AUÐVITAÐ var stelpan ekki búin að setja fleirri en 3 þegar ég missti einn  molann með fjandans sykrinum á aðra höndina og við að bjarga henni þá missti ég hann á hina...þannig ég brenndi mig á báðum hahhah geri aðrir betur og mikið djöfull var það vont vá helvítis sykurinn.... En ég er með nettar 2 blöðrur Devil dellaði á þær tannkremi í gærkveld þannig þetta er ekkert...það er besta meðalið við bruna..! En  já í morgunn vaknaði ég svo bara föst í bakinu...alveg að meika það...og jú gleymi einu..þar sem ég hef verið að drepast úr hausverk i svoldinn  tíma þá hennti ég mér til doksa og þaðan í augnlækni og viti menn stelpan er komin með gleraugu hahahah KELLINGInLove hefði svosem mátt vita það ég sér ekki rassgat hhahahah Sara tildæmis löngu hætt að ferðast með mér á bíl hahaha   er víst eitthvað óspennandi ökumaður......;) held nú samt ekki.....fínasti bílstjóri ( finnst mér ) keyri kanski of hratt en ekkert ógætilega haha jæja nenni ekki þessu bulli.....set bara myndir af mér og Ástþór á hjólinu....

já annað Hann Villi sagði mér i gær að hann heitir ekki Vilberg og gengur ekki í fötum....Hann heitir SESAR svo það sér á tæru..þið munið það hehehehHalo 

                      mamman að stelast  á hans...          april 073              april 051          hann er alveg dásamlegur;)

 

 

 

 

 

 

 

 

Stelpan orðin haugurDevil

april 020

 

 

 

 

  Illa spenntur fyrir sinunni;)

april 074

 

 

og ein af Ástþór og Arnóri brasa með hjólið þeir eru svo miklir naglar hahaha

april 048

 


Hæ það ér fínt að frétta ;)

Ekki hef ég nú mikið að segja...jú  þið sem eruð með mig á msn á er ég að fara að búa mér til nýtt...set það hérna inn þegar það er komið...hitt er bara einn vírus og ég sendandi um allt...;(   þannig ég eiginlega opna það ekki..Whistling Helgin leið fínt ég fór bara í golf og jesús...kem svona glimrandi fín undan vetri að ég hitti ekki kúlufjandann hahahahahDevil

Svo á laugardagsmorgunn kl 10 var liðið á þessum bæ komið út að leika....við fullorðnu stungum þau af og fórum á fjórhjólunum út á stapa;) trítluðum út að draugaskipinu þar og ég í hvítum strigaskóm..alveg snilld...var útötuð í mold og þara.InLove Svo komu krakkarnir hlaupandi á eftir okkur og vildu vera með hehehhe en þá fóru þeir á hjólin og við röltum..og vorum við svo einstaklega heppin að það hafði kviknað í sinu þarna út i móa og við auðvitað líklegust til að hafa kveikt hana ;)  en ekki hvað....svo fór sunnudagurinn í fótboltkeppni í reykjaneshöllinni. Ég sé að drengurinn ætlar að hafa hæfileikana þar frá mömmu sinni eins og alla aðra hahahah.....en já ekki var nú meira gert en ég alla vega man það þá ekki....mig hefur ekki dreymt heldur þannig þetta er bara eins og það á að vera.......Whistling  jæja ætlaði bara að segja hæ því ég hef ekkert gert það síðustu daga..en í vogunum erum við með lífmarki...sumir meir en aðrir...( Vilberg )  hann er snillingur á bara ekki annað orð yfir hann;)

En ég setti inn myndir frá helginni svo ég segi bara bæ þangað til ég verð í gírnum með eitthvað hérna...  jú svo ér georg buin að vera að steipa og gera fínt hérna fyrir utan því hann er að stækka kjallarann ;) svo duglegur...hihihi 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband